föstudagur, 22. febrúar 2008

Úff...

Hrapaði í ostaborðið í vinnunni í hádegismatnum.
Verða væntanlega fróðleg efnahvörf þegar hinar ýmsu ostmyglufjölskyldur koma saman í vömbinni. Merkilegt annars... ég henti mygluðum tómötum í vikunni, en háma svo í mig osta í svipuðu ásigkomulagi. Ekki samræmið hér frekar en fyrri daginn...

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

vildi óska að ég gæti hrapað á viðlíka hátt í minni vinnu. engir ostahröpunarmöguleikar á berklahælinu, er ég hrædd um.

get samt gengið í skógi og keypt ullarvettlinga í kvos.