miðvikudagur, 15. október 2008

Kreppan laðar fram það versta í fólki...

eins og sannast á ritræpunni sem hrjáir mig í dag.  

Ég sá í blöðunum í morgun að Greiningardeild Glitnis var vöknuð og komin með skoðun og skýringar á ástandi mála. 
Ætti þessi blessuð greiningardeild nú ekki að sjá sóma sinn í að þegja?
Spáiði bara í hvert við erum búin að láta teyma okkur af þessu fólki. Það voru svoleiðis bullandi kauptækifærin út um allt. Og hvergi átti blessuð útrásin ötulli talsmenn en einmitt í gerfivísindamönnum greiningardeildanna. Svo þegar atburðirnir hafa sýnt svo ekki verður um villst, að þetta lið hefði eins geta verið aðrýna í telauf eða fuglsiður, dúkkar þá ekki upp draugur og ætlar að fara að útskýra ástandið og segja okkur hvernig þetta verði næstu misserin. Ég ætla rétt að vona að þetta lið sé bara að vinna út uppsagnarfrestinn og að það hafi verið eitt stakt óhappatilvik að þessi Ingólfur þarna komst í fjölmiðla. Það eina sem ég vildi sjá þessa deild gera væri að ganga niður Laugarveginn í strigakuflum,maka á sig ösku og lemja sig í ennið með plankabútum meðan það kyrjaði um hvað þau skömmuðust sín.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

eru þeir máske haldnir gervigreind?

HT sagði...

Það sem þetta lið kallar greind er móðgun við heiðarlega gerfigreind!

Nafnlaus sagði...

Æ, ég á kunningja í greiningardeildum og ég vorkenni þeim svo.

HT sagði...

Og þessir kunningjar hafa auðvitað séð þetta ástand fyrir og gert ráðstafanir eða hvað?
Þetta fólk hefur undanfarin ár verið á góðum launum við að halda fram alls koar bulli eftir hagsmunum bankanna á hverjum tíma og hjúpa í gerfivísindabúning. Þegar allt draslið er svo hrunið, kauptækifærin gufuð upp, birtist þá ekki einhver sperrileggur úr greiningardeild og ætlar að fara að nota nákvæmlega sömu retoríkina til að útskýra og spá.
Getur enginn sagt Skammastín og vertu í herberginu þínu við svona fólk?